AC/DC

Ég er breyskur maður eins og flestir aðrir…ef ekki allir. Ég á mínar heimsku stundir þar sem ég tek heimskar ákvarðanir í góðri trú. Ég er samt ekki eins heimskur og þessi heimski ástralski hlustandi sem hringdi inn í útvarpið þar í landi. Mér skilst að einhverjir hafi nú heyrt þetta áður en ég var að heyra þetta áðan og varð að setja þetta upp.


 
Fluggáfaður þessi maður…’Marc, Marc, I’m gonna kill you in a minute’.

Víkingur-Fjölnir

Á morgun leikum við Víkingar á Fjölnisvelli á móti ’spútnikkliðinu’ í efstu deild. Ég held þetta séu 8-liða úrslit frekar en eitthvað annað. En Bikarinn er sérstök keppni að taka þátt í. Þetta er dagsforms og stemningskeppni. Ég vona að ég fái að byrja og að lappirnar leyfi mér að spila eins vel og ég get. Ég vona líka að Dabbi Rú fái að spila og að Krissi Hauks verði þarna inná. Spurning um að veðja við Krissa Hauks? Væri það kannski ólöglegt :)

Ég ætla að leyfa mér að spá þessum leik okkur í hag eftir vítakeppni. Ef ég byrja inná er hreinlega ekki sjens að ég taki víti í vítakeppni. 120 mínútur eru ekki til staðar í líkamanum verð ég að segja. En allavega. Ekki klikka á að mæta á völlinn á morgun. Fjölnir-Víkingur! Holla!

Well that sucked

Jæja…eins og maður var nú fullur af lífi í síðasta leik þá var lítið að gerast á Akureyri. Þyngsti völlur sem ég hef lent í og ég náði mér engan veginn á strik. En það er bara næsta æfing þá. Á morgun. Þá heldur vinnan áfram og við hengjum bara alls ekki haus. Það hjálpar engum.

Ég nenni svosem ekki að vera að greina þetta eitthvað í drasl en málið er að ég var dapur og liðið líka að mínu mati. Það býr meira í liðinu en þetta og nú höldum við bara áfram. Punktur.

Magnað annars að Arnar og Bjarki séu teknir við skaganum aftur. Mér finnst það hreint út sagt magnað. Þeir eru greinilega miklir skagamenn og ég hef fulla trú á viðsnúningi hjá þeim núna. En við sjáum samt til. Þeir eru í gríðarlega erfiðri stöðu þarna við botninn. Ég held þeir séu með 7 stig og töpuðu síðasta leik 6-1. Þarna þarf aðgerðir og það miklar.

Annars kveðjur á alla sem eru að lesa þetta. One love í bili.

Boltavaktin

Breiðablik valtaði yfir ÍA 6-1 og FH tók HK 4-0. Ótrúlegar tölur miðað við að bæði ÍA og HK eru í fallbaráttu. Nema þannig sé litið á málið að þessi lið geti ekki meira en þetta og séu þess vegna þarna í deildinni. En því á maður nú bágt með að kyngja. Ég hef staðið í fallbaráttu og það er ömurlega leiðinlegt. En skaginn og HK eiga allavega að geta varið eigið mark betur en þetta. HK menn eru t.d. með Gunnleif í markinu og það er nú enginn smávegis markmaður að hafa verð ég að segja. En þegar menn eru þarna þá reyndar byrjar oft allt að falla gegn manni og maður missir neistann ef maður er ekki þeim mun einbeittari. Það þarf ekki nema einn bakvörð eða einn miðjumann til að hengja haus og þá getur liðið dáið innan frá. En baráttukveðjur á alla í botnbaráttu. Þetta styrkir karakterinn in the long run.

Við Víkingar erum á leið til Akureyrar og spilum við KA næst. Það er ekkert sem heitir. Þarna eigum við að vinna leikinn. Annað kemur ekki til greina. KA er víst með hörkulið og það er alltaf erfitt að spila á Akyreyri. Allavega hef ég ekki enn lent í léttum leik þar. En ef maður ætlar sér hluti þá verður maður að að yfirstíga ákveðna hluti og á Akureyri bíður okkar mikil prófraun. No doubt.

Jæja…back to the photoshopping. Friður í bili.

Skita

Maður bara tapar ekki fyrir Selfossi…það er bara þannig. Ég fékk að koma inná snemma í seinni hálfleik og reyndi að komast á boltann en var ekki alveg sáttur…hefði viljað komast aðeins oftar á hann og gera betur einu sinni eða tvisvar. En í sannleika sagt lágum við fáránlega á þeim í seinni hálfleik og hefðum átt að nýta eitthvað af okkar færum í leiknum. Maður tapar leikjum ef maður setur hann ekki. Skita…komið bakvið mann og nú tökum við KA í næsta leik.

Ég vil koma á framfæri gríðarlegu þakklæti til stuðningsmanna Víkings fyrir afar hlýlegar móttökur. Ég mun svo sannarlega leggja allt í sölurnar fyrir félagið og ég vona bara að hlutirnir gangi upp hjá okkur. En með stuðningi eins og liðið og ég persónulega fékk á Selfossi þá trúi ég að okkur séu allir vegir færir. Þetta var brilliant.

Ég mæli með

Facebook - Það er ótrúlegasta fólk á Facebook. Ég er með svo magnað fólk sem vini á Facebook og ég þori nú varla að minnast á það en ég hef séð helling af fólki sem ég væri geðveikt til í að adda. Gömlum kunningjum og svona sem ég er eitthvað of feiminn til að adda strax. Ég fer að ‘grow a pair’ og adda þeim öllum bráðlega samt. Það þýðir ekkert annað maður. En ef ég á að bera saman Facebook og Myspace þá verð ég að velja Facebook. Myspace-ið er aðeins of mikið skrum. Of mikið Flash og ljótir prófílar. Fyrir utan öll embedduðu youtube myndböndin og youtube commentin. Ég fíla Facebook betur í eitthvað svona safna vinum dæmi. Annars er ég glataður online network gaur. Það er ótrúlegt en satt en ég er feimnari þar ef eitthvað er. Magnað. En drulla sér á Facebook og finna alla gömlu góðu kunningjana og vinina. Emil Örvar má róa sig með apps dæmið samt. Helló!?!

Gomusic.ru - Til að downloada tónlist þá fíla ég þessa síðu best. Að sjálfsögðu er mest af mainstream dæmi þarna inni en bróðir minn fann nú einhvern tímann kristilegt 80’s metal band þarna inni sem hann bjóst aldrei við að finna svo eitt og annað leynist nú þarna. Maður leggur inn ákveðna upphæð, t.d. 30$ og svo bara velurðu þér hvað þú vilt fá. Hver diskur kostar ca. 2-3$ og þú getur líka tekið eitt og eitt lag á nánast ekkert. Ég mæli klárlega með þessu. Ég setti kortið mitt þarna inn fyrir löngu og hef ekki átt í neinu veseni með neitt þarna. Alls ekki hrædd við rússnesku síðurnar! ;-)

zenhabits.net - Það er linkur á hana hér til vinstri á síðunni. Ég fíla þessar pælingar hans en hann er aðallega að spá í hvernig maður getur breytt venjum sínum til að fá aðeins meira ‘zen’ í sitt líf. Þó er hann ekki zen munkur og þetta er alveg laust við þessi trúarbrögð. Þetta eru t.d. leiðbeiningar um hvernig þú getur vaknað fyrr á morgnana, aukið framleiðni þína í vinnunni o.s.frv. Gaman að þessu. Toggi Þrá er klárlega sáttur við þessa síðu.

Nóg í bili. DH út.

Boltinn…eins og venjulega

Magandang arao! Valsmenn töpuðu 2-0 fyrir BATE Jeltsín úti. GBen var samt brattur í viðtali sá ég. Ætlar sér að slá þetta lið út. Gaman að því. Ég hef fulla trú á Valsliðinu í þessu. FH-ingar duttu tæpt út í fyrra gegn þeim svo það er allt hægt í þessu. Það hefði nú verið gaman að geta sagst hafa komið til Minsk eins og David the scientist guy. (Handabending: L á ennið á mér!)

Nú er ég búinn að æfa tvisvar með Víkingunum. Maður er að finna taktinn aftur. En það er ótrúlega gaman að vera kominn af stað! Ég finn að ég á helling inni og hlakka til að komast á fullt. Herbinn gerir góða hluti núna. Finn hrikalegan mun eftir að ég tók hann alvarlega aftur. Orkumunur dauðans.

Leikur á morgun með Víking á Selfossi. Víkingar eru ósigraðir í 6 leikjum í röð og því býst ég við að sjá góðan leik frá mínum mönnum. Hlakka til. Langt síðan ég hef komið til Skímó City…the land of Honda Civics where the guys is pretty! Meira síðar. Adios.

 

Áfram V

Jæja. Þá er maður víst orðinn Víkingur aftur það sem eftir lifir sumars. Það verður gaman að skella sér í þennan kunnuglega slag. Ég hef vart tölu á því hversu oft ég hef staðið í þessu með Víkingunum. Næsti leikur er víst 17.07 á Selfossi gegn heimamönnum. Zoran Milkovic að þjálfa þá og ég kannast aðeins við kauða. Spilaði með honum árið 2000. Selfyssingar eru nokkuð þéttir skilst mér og eru búnir að skora einhvern helling af mörkum. Þetta er fyrsti leikur sem ég er gjaldgengur í með þeim núna og ég er nokkuð spenntur bara. Æfing á eftir með þeim og gott fótboltaveður í lofti. Maður er eiturbrattur bara.

Svo verð ég að segja að fótbolti er magnað fyrirbæri. Lífið getur farið haus yfir rass en ef maður nær að gleyma sér í boltanum í einn og hálfan tíma á dag þá er maður alltaf betri á eftir. Býst við að handbolti og aðrar íþróttir gefi sínum iðkendum og aðdáendum eitthvað svipað…eða allavega vona ég það. Nú er svolítið síðan ég náði almennilega að svitna út frústrasjón og ég vona að ég geti nýtt æfinguna í kvöld vel.

En jæja…nú út sumarið er það áfram Víkingur og áfram Valur. FH tapaði fyrir Fylki og því er allt mögulegt í þessu. Keflvíkingum fer að fatast flugið vonandi líka og Fjölnismenn halda varla út heilt mót. En eins og maður segir…þá er allt mögulegt. Friður og virðing.

Besta RnB lag allra tíma

Þetta er besta RnB lag sem ég hef hreinlega heyrt. Þið verðið að hlusta a.m.k. fram yfir kaflaskiptin sem eru á 30-35 sekúndu. Þá stoppar lagið og svo koma þeir sterkir inn með harmoníu. It’s a must hear!

Young Spuset - Let’s stay together!

Hér er lagið.

KR-Valur

Líst vel á þennan leik. Verð að segja að ég myndi veðja á Valsarana í þessum leik. Held að KR missi niður gott record undanfarið. Valsmenn hafa verið að rífa sig upp eftir erfiða byrjun og þeir styrkjast með hverri vikunni. Birkir er að spila sinn lokaleik og ég býst við stellar frammistöðu frá honum eins og í síðasta leik. Pálmi er undir smásjánni eins og vanalega og það styttist í aðgerðir í evrópu varðandi hann skilst mér á öllu þannig að hann er að fara að standa sig. Helgi Sig er þyrstur sem endranær í að skora og Willum vill ekki fara til gamla klúbbsins og tapa, það er klárt. Svo ég veðja á Val í kvöld. En við spyrjum að leikslokum.

Af mínum málum er það er frétta að feldurinn er á leiðinni af mér. Það er vissulega heitt undir þessum feldi og hausinn rennblautur og nú fer að detta í ákvörðun. Spennandi.

Allavega. KR-Valur í kvöld og ekkert annað.